Menningarhúsið Hof

Hof hentar ákaflega vel til að halda skemmtilegar og glæsilegar veislur eða móttökur. Nokkur svæði koma til greina sem hægt er að leigja sér. Einnig er

Móttökur, veislur og sýningar

Hof hentar ákaflega vel til að halda skemmtilegar og glæsilegar veislur eða móttökur. Nokkur svæði koma til greina sem hægt er að leigja sér. Einnig er hægt að sameina fleiri svæði og þá er hægt að halda allt að 1000 manna veislu eða móttöku í húsinu á glæsilegan hátt.

Myndir af salakynnum

Hamrar er minni salurinn í húsinu. Hann tekur 200 manns í sæti m.v bíóuppröðun og um 300 manns í standandi veislu. Salurinn er með þrjár stórar hurðir sem opnast út á verönd og er  tilvalinn í fallegar veislur svo sem brúðkaup, fermingar og afmæli. Í þessum sal eru fullkomin hljómgæði og hann er auðveldlega hægt að opna og sameina öðrum svæðum hússins og halda stærri veislur.

Naustið er forsalur hússins. Salurinn einn og sér tekur um 250 manns í sæti m.v bíóuppröðun en  450 manns í standandi veislu. Salurinn er mjög opinn og þar er hátt til lofts, hann er bjartur og hefur fallegt útsýni inn Eyjafjörðinn. Í Naustinu eru stórir gluggar og glerhurðir út á fallega og skjólgóða verönd til suðurs sem er alveg við sjóinn. Salurinn er  tilvalinn fyrir móttökur og veislur af ýmsu tagi.  

Hamragilið er lífæðin í húsinu og gefur möguleika á mjög skemmtilegum móttökum, veislum og sýningum. Úr Hamragilinu er  tenging við öll önnur stór rými í húsinu. Hægt er að halda 500 manna standandi veislu í Hamragilinu og rúmlega 1000 manna veislu með því að sameina Hamragilið, Naustið, Hamra og veitingasvæðið. Hamragilið er bjart, opið og þar er lofthæðin 14 metrar. Í sama rými er veitingahúsið staðsett á jarðhæð og upp á björtum palli í suðurendanum.

 

Hof býður upp á fjölbreytta þjónustu til að gera veisluna eða móttökuna sem besta úr garði. Lista yfir margvíslegt þjónustuframboð má finna hér.

 

Þegar húsið er leigt út í veislur eða móttökur fylgir með aðstoð frá umsjónarmanni hússins og einnig eru þrif innifalinn.  Nánari upplýsingar má fá í síma 450-1000 og eins má senda fyrirspurnir á netfangið info@menningarhus.is.

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf