Menningarhúsið Hof er hannað sem tónlistar- og sviðslistahús. Þar er öll aðstaða miðuð við að listamönnum finnst gott að vinna í húsinu. Í Hofi eru tveir stórir salir annar með 510 sætum og hinn með allt að 200 sætum.
Hamraborg er stóri salurinn í húsinu með 510 sætum sem eru föst á hallandi gólfi
í hefðbundinni bíóuppstillingu. Salurinn er með fullkomið hljóðkerfi og hentar vel fyrir bæði rafmagnaða og órafmagnaða
tónlist. Í Hamraborg er einnig til staðar fullkominn ljósabúnaður, mistvél, myndavarpi og sýningatjöld. Í
salnum eru 21 flugrá, sviðstjöld og annar búnaður sem notendur hússins geta fengið afnot af. Sviðið er 280 fermetrar með hljómsveitargryfju en
hægt er að aðlaga það að óskum notenda hverju sinni meðal annars með hljóðdrapperingu og öðrum sviðstjöldum.
Hamrar er minni
salurinn í húsinu. Í Hömrum er flatt gólf, lausir stólar og laust svið sem þýðir að auðvelt er að aðlaga
hann að óskum notenda hverju sinni. Salurinn getur tekið 200 manns í sæti. Salurinn er klæddur með ljósum panel en í honum er mikil
áhersla lögð á hljómburð og hentar hann vel til tónlistarflutnings bæði fyrir rafmagnaða og órafmagnaða tónlist.
Í salnum er fullkomið hljóðkerfi og ljósabúnaður, þráðlaus nettenging, skjávarpi og tjald. Á auðveldan hátt
að opna salinn og sameina næstu rýmum hússins t.d Hamragilinu sem er lífæð hússins.
Í anddyri hússins er fullkomin þjónustumiðstöð, þar sem meðal annars er miðasala og sala á varningi sem tengist viðburðum í húsinu. Baksviðsaðstaða svo sem búningsherbergi og hár og förðun má finna í kjallara hússins ásamt kaffistofu listamanna.
|
|
