Menningarhúsið Hof

Hof býður uppá fullkomna ráðstefnuaðstöðu með öllum tækjabúnaði og aðstöðu sem þarf til að halda glæsilegar ráðstefnur. Myndir af salakynnum Búnaður sem

Ráðstefnur og fundir

Hof býður uppá fullkomna ráðstefnuaðstöðu með öllum tækjabúnaði og aðstöðu sem þarf til að halda glæsilegar ráðstefnur.

Myndir af salakynnum

Búnaður sem hægt er að fá aðgengi að í tengslum við viðburði í húsinu:

  • Þráðlaus nettenging
  • Aðgangur að símafundabúnaði
  • DVD spilari og myndbandstæki
  • Tölva, skjávarpi og tjöld
  • Uppsetning á hljóðkerfi og lýsingu eftir þörfum og aðstæðum hverju sinni
  • Aðgangur að þráðlausum hljóðnemum
  • Aðgangur að prentun, ljósritun, faxtæki o.þ.h
  • Aðgangur að skrifstofuaðstöðu
  • Aðgangur að minni funda- og vinnuherbergjum
  • Upptaka á viðburðum (hljóð og/eða mynd)
  • Skráning á viðburði – símsvörun
  • Aðgangur að veitingaþjónustu
  • Aðstoð við markaðssetningu og kynningu viðburða
  • Aðstoð við skipulagningu á menningartengdum viðburðum eða afþreyingu í tengslum við ráðstefnuhald
  • Umsjón með uppstillingu og skreytingu í rýmum og á sviði (hönnun og framleiðsla)
  • Þjónusta í fatahengi
  • Þjónusta í tengslum við förðun, hárgreiðslu og þess háttar.

Hof býður einnig upp á veitingaþjónustu og skrifstofuaðstöðu fyrir stjórnanda/skipuleggjanda ráðstefnunnar.  Einnig getum við boðið skipuleggjendum  lista yfir menningartengda afþreyingu sem húsið getur haft milligöngu um  að panta og lista yfir ýmsar styttri ferðir sem eru í boði fyrir hópa. 

Ráðstefnubærinn Akureyri er heill heimur út af fyrir sig. Bærinn er friðsæll, stutt á milli staða og auðvelt að halda hópum saman í leik og starfi. Fyrsta flokks þjónusta er í boði á öllum sviðum og leikur einn að gera vel við sig og sína. Möguleikar til afþreyingar eru óþrjótandi allan ársins hring, hvort sem um er að ræða skoðunarferðir, hópefli, íþróttir, menningarviðburði, kynningar eða fræðslu.

Hér má finna bækling á ensku um ráðstefnubæinn Akureyri

 

 

 

 

 

 

 

 

 

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf