Menningarhúsið Hof

Notendur Menningarhússins geta nýtt sér fjölþætta þjónustu sem er í boði í húsinu. Starfsmenn Hofs munu kappkosta við að veita ráðgjöf og framúrskarandi

Þjónustan

Notendur Menningarhússins geta nýtt sér fjölþætta þjónustu sem er í boði í húsinu. Starfsmenn Hofs munu kappkosta við að veita ráðgjöf og framúrskarandi þjónustu hverju sinni.

Á meðal þeirrar þjónstu sem notendum stendur til boða er:

  • Aðstoð við skipulagningu menningartengdra viðburða og afþreyingar
  • Aðstoð við markaðssetningu viðburða
  • Uppsetning og skreytingar á sviði
  • Tækniráðgjöf
  • Upptökur á viðburðum, mynd og hljóð
  • Miðasala
  • Þjónusta í fatahengi
  • Förðun og hárgreiðsla

Nánari upplýsingar um þjónustuframboð og verð eru veittar hjá starfsmönnum Hofs í síma 450-100 en fyrirspurnir má einnig senda á info@menningarhus.is

1862 Nordic Bistro annast alla veitingaþjónustu í húsinu. Staðurinn er allt í senn smurbrauðsstofa, kaffihús, veitingastaður og veisluþjónusta.  Lögð er áhersla á vandað danskt smurbrauð og góðar kökur í bland við skemmtilega rétti af norrænum uppruna. 

Starfsmenn 1862 Nordic Bistro er alltaf tilbúnir til að veita ráðgjöf, koma með hugmyndir og gefar verðtilboð hvort sem að það er tengt viðburðum í húsinu, fermingu, árshátíð eða brúðkaupi. Upplýsingar í síma 661-0661 eða 1862@1862.is

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf