Menningarhúsið Hof

Menningarhúsið Hof er í miðbæ Akureyrar og er eitt af helstu kennileitum bæjarins. Það er staðsett á Strandgötu 12. Aðalinngangur Hofs snýr í norðvestur.

Staðsetning og aðgengi

Menningarhúsið Hof er í miðbæ Akureyrar og er eitt af helstu kennileitum bæjarins. Það er staðsett á Strandgötu 12.

Aðalinngangur Hofs snýr í norðvestur. Útsýni er úr húsinu í allar áttir. Einnig verður hægt að ganga út og inn um húsið að suðaustanverðu. Við aðalinnganginn er rennihurð og sunnanmegin er vængjahurð. Aðkoman sunnanmegin hússins er mjög heillandi fyrir siglingafólk á minni bátum sem leggja við bryggju tengda húsinu, ferðamenn og aðra gesti. Einnig er hægt að ganga inn í húsið um forsalinn en opnun á þeim inngangi verður háð þeim viðburðum sem þar fara fram.

Bílastæði

Bílastæði eru norðan og austan við bygginguna og hitalögn er í stéttum á helstu gönguleiðum. Almenn lýsing er að bílastæðum og göngulýsing við stíga. Grasflöt er við húsið að vestan- og norðanverðu. Út um glugga fjölnotasalarins blasir við útilistaverkagarður. Hann er að hluta til hellulagður með stórum steyptum hellum, möl og lágum gróðri.

Aðgengi fyrir fatlaða

Aðgengi fyrir fatlaða í Menningarhúsinu Hofi er til fyrirmyndar. Við minnum gesti á að taka fram við miðasölu ef þörf er á þeim sætum, þar sem fjöldi þeirra er takmarkaður.

Sérstök bílastæði eru fyrir hreyfihamlaða við aðalinngang byggingarinnar. Inni í byggingunni er greið leið fyrir alla með lyftu sem tengir allar hæðir. Allar hurðir miðast við umferð hreyfihamlaðra og sérstök salerni fyrir hreyfihamlaða eru í húsinu.

 

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf