Upplýsingamiðstöð ferðamála á Akureyri sem starfrækt er í Hafnarstræti 82, flytur í Menningarhúsið Hof haustið 2010.
Upplýsingamiðstöðin er opin allt árið. Upplýsingamiðstöðin verður staðsett á 1. hæð hússins (í sama
rými og verslunin) og er rekin af Akureyrarstofu.
Starfsmenn Upplýsingamiðstöðvarinnar veita upplýsingar um gistimöguleika, veitingar, afþreyingu, veður, færð á vegum, áætlunarferðir, skipulagðar ferðir og margt fleira á Norðurlandi og víðar um land. Þar er einnig hægt að nálgast upplýsingabæklinga, bóka gistingu og kaupa ferðir, ferðakort, göngukort, póstkort, frímerki og fleira. Í Upplýsingamiðstöðinni eru nettengdar tölvur og símar sem hægt er að fá aðgang að gegn vægu gjaldi.
Þeir sem standa að rekstri Upplýsingamiðstöðvarinnar eru: Akureyrarbær, Samgönguráðuneytið og Ferðamálaráð.
Nánari upplýsingar er að finna á slóðunum http://www.nordurland.is/ og http://www.visitakureyri.is/.
Netfang: info@visitakureyri.is.
