Skrifstofur Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands eru á 2. hæð í Hofi.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands var formlega stofnuð haustið 1993. Hljómsveitin hélt sína fyrstu tónleika 24. október
það ár undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar sem verið hefur aðalhljómsveitarstjóri frá síðan. Frá þeim degi
hefur hljómsveitin flutt fjórar til fimm efnisskrár á hverju ári og leikið nánast allar tegundir klassískrar tónlistar frá barokk
til nútímatónlistar. Haldnir hafa verið tónleikar víða á Norðurlandi þó aðaltónleikastaður sé Akureyri,
heimavettvangur hljómsveitarinnar.
Hljómsveitin fær rekstrarframlag frá Akureyrarbæ og ríkinu samkvæmt sérstökum samningi þessara aðila.
Á meðal verkefna Sinfóníunar eru skólatónleikar hófust fyrir nokkrum árum þar sem lítil hljómsveit hefur heimsótt
skóla á Akureyri og í nágrenni og leikið fyrir nemendur, kynnt þeim hljóðfæri og fengið þá til að taka þátt
í tónlistarflutningi. Með opnun Hofs verður breyting á þar sem Sinfónían stefnir að því að halda skólatónleika
í Hofi.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur átt samstarf við ýmsa aðila varðandi tónlistarflutning. Má þar m.a.
nefna Kórastefnu við Mývatn og þátttöku SN í Kirkjulistaviku Akureyrarkirkju.
Framkvæmdastjóri er Magna Guðmundsdóttir. Netfang: sinfonia@akureyri.is.
Nánari upplýsingar um Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er að finna á slóðinni http://www.sinfonianord.is/.
