Menningarhúsið Hof

Leikfélag Akureyrar er eina atvinnuleikhús landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Aðsetur leikfélagsins er í Samkomuhúsinu en leiksýningar þess fara fram

Leikfélag Akureyrar

Leikfélag Akureyrar er eina atvinnuleikhús landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Aðsetur leikfélagsins er í Samkomuhúsinu en leiksýningar þess fara fram í Samkomuhúsinu, Rýminu og í Hofi.

Leikfélagið er rekið með stuðningi Akureyrarbæjar á grunni samnings við Menntamálaráðuneytið. Saga Leikfélagsins spannar nú nær heila öld, en félagið varð atvinnuleikhús árið 1973. Starfsemin er í hjarta Akureyrar í fallegu nýuppgerðu leikhúsi, Samkomuhúsinu, sem tekur 210 manns í sæti. Samkomuhúsið er hefðbundið leikhús með sviði, upphækkuðum sal og svölum. Þann 16. febrúar 2006 opnaði leikhúsið nýtt leikrými sem það nefnir einfaldlega Rýmið. Rýmið er svartur kassi sem hægt er að nýta á fjölda ólíka vegu. Leikhúsið sýnir einnig í öðrum rýmum bæði innan bæjarins en einnig í Reykjavík.

Verkefnaskrá leikhússins hefur í gegnum tíðina verið fjölbreytt, klassísk íslensk og erlend verk, ný íslensk og erlend verk, barnaleikrit og söngleikir. Árlega sviðsetur leikhúsið fjórar til sjö leiksýningar á eigin vegum og í samstarfi við aðra auk ótal styttri sýninga og smærri viðburða. Fjöldi nýrra íslenskra verka hefur verið frumsýndur hjá leikhúsinu og listamenn leikhússins vinna reglulega með nýjum leikskáldum.  Fjöldi fastráðinna leikara er nokkuð breytilegur á milli tímabila en leikhópurinn hefur talið 4-11. Fast starfsfólk LA er um 10 en á hverju ári koma við sögu yfir 50 starfskraftar. Gestir leikhússins koma frá landinu öllu og í gegnum tíðina hefur verið vinsælt að fara í leikhúsferðir til Akureyrar til að sjá þær leiksýningar sem eru á boðstólum. Á aðsóknarmesta leikári  í sögu LA sóttu 41.000 gestir leikhúsið heim á Akureyri. Fjöldi gesta hefur einnig séð sýningar LA í Reykjavík. Á langri sögu hefur leikhúsið unnið marga sigra og hlotið viðurkenningar af ýmsu tagi.

 Leikhússtjóri er María Sigurðardóttir. Netfang: mariasig@leikfelag.is.

Allar nánari upplýsingar um starfsemi leikfélagsins er að finna á slóðinni http://www.leikfelag.is/.

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf