Í húsinu eru mörg funda- og vinnuherbergi sem hægt er að leigja. Meðal annars má nefna skemmtilegt
fundarherbergi á 2. hæð með útsýni inn í húsið og í norðurátt yfir bæinn.
Veitingahúsið í Hofi er á tveimur hæðum og tekur allt að 120 manns í sæti. Þar er þó með lítilli
fyrirhöfn hægt að halda allt að 500 manna veislur með opnun yfir í nærliggjandi rými.
Í anddyri hússins er fullkomin þjónustumiðstöð, með ljósritunaraðstöðu, tölvum, netsambandi og símum.
Á sömu hæð er glæsilegt opið tengirými með mikilli lofthæð sem hentar til sýningarhalds og kynninga,
margmiðlunarhellir fyrir myndrænar sýningar og forsalur fyrir framan aðalsalinn sem hentar vel fyrir móttökur og sýningar.
Salurinn rúmar um 350-450 manns.
Fatahengi er í forsalnum fyrir framan aðalsalinn. Hægt er að panta þjónustu í fatahengið í tengslum við uppákomur í húsinu.
