Salurinn tekur 500 manns í sæti. Sætin eru föst á hallandi gólfi í hefðbundinni bíóuppstillingu. Salurinn er með fullkomið hljóðkerfi, ljósabúnað, tækniklefa, myndavarpa til kvikmyndasýninga, fjarfundabúnað, þráðlausa nettengingu, DVD spilara og túlkunaraðstöðu. Í salnum er stórt svið sem má aðlaga að þörfum notenda hverju sinni.
