Hamraborg er
aðalsalur hússins en hann tekur 510 manns í sæti. Sætin eru föst í hefðbundinni bíóuppstillingu. Salurinn er með fullkomið
hljóðkerfi, ljósabúnað, tækniklefa og myndavarpa til kvikmyndasýninga.
Sviðið er 280 fermetrar með hljómsveitargryfju en hægt er að aðlaga það að óskum notenda hverju sinni meðal annars með hljóðdrapperingum og öðrum sviðstjöldum.
Í aðalsalnum er einnig fullkominn ljósabúnaður, mistvél, myndavarpi og sýningatjöld. Í salnum eru 21 flugrá, sviðstjöld og annar búnaður sem notendur hússins geta fengið afnot af.
Að auki er fjarfundabúnaður til staðar, þráðlaus nettenging, DVD spilari og túlkunaraðstaða.
