Menningarhúsið Hof

Hamraborg er aðalsalur hússins en hann tekur 500 manns í sæti. Sætin eru föst í hefðbundinni bíóuppstillingu. Salurinn er með fullkomið hljóðkerfi,

Aðalsalur

Hamraborg er aðalsalur hússins en hann tekur 500 manns í sæti. Sætin eru föst í hefðbundinni bíóuppstillingu. Salurinn er með fullkomið hljóðkerfi, ljósabúnað, tækniklefa og myndavarpa til kvikmyndasýninga.

Sviðið er 280 fermetrar með hljómsveitargryfju en hægt er að aðlaga það að óskum notenda hverju sinni meðal annars með hljóðdrapperingu og öðrum sviðstjöldum.

Í aðalsalnum er einnig fullkominn ljósabúnaður, mistvél, myndavarpi og sýningatjöld. Í salnum eru 21 flugrá, sviðstjöld og annar búnaður sem notendur hússins geta fengið afnot af.

 Að auki er fjarfundabúnaður til staðar, þráðlaus nettenging, DVD spilari og túlkunaraðstaða.

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf