Menningarhúsið Hof skapar verðugan ramma um menningar- og tónlistarlíf með því að bjóða upp á fyrirmyndaraðstöðu fyrir fjölbreytilega viðburði, s.s. á sviði tónlistar, leiklistar og danslistar.
Með tilkomu hússins batnar einnig til mikilla muna möguleikar til að halda, á Akureyri, stórar ráðstefnur, innlendar sem
alþjóðlegar, og viðburði af ýmsum toga. Hof er eitt af helstu kennileitum Akureyrar og mun hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn.
Húsið verður tekið í noktun ágúst næstkomandi en formleg opnun verður þann 27. ágúst.
