
Kvennakórinn Embla flytur tónlist eftir Mahler, Rachmaninoff, Grieg, Sigfús Einarsson og Atla Heimi Sveinsson á vortónleikum í Hömrum, Hofi fimmtudaginn 19. maí kl. 20.00.
Á efnisskránni er undurfalleg og rómantísk tónlist sem enginn unnandi klassískrar tónlistar má missa af. Einsöngvarar úr röðum kórfélagana, píanóleikari er Aladár Rácz og Roar Kvam stjórnar.
Miðaverð: 2.500 kr.
Eldri borgarar: 2.000 kr.
Vinsamlegast athugið að það eru ónúmeruð sæti á tónleikana.
