
Karlakór Eyjafjarðar undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur mun halda sína árlegu vortónleika í Hömrum í Hofi föstudaginn 29. apríl kl. 20.30.
Kórinn nýtur liðstyrks frábærra hljóðfæraleikara en þeir eru Páll Barna Szabó píanóleikari, Birgir Karlsson gítarleikari, Haukur Ingólfsson bassaleikari og Rafn Sveinsson trommuleikari. Þar að auki stíga fram þeir Birgir Björnsson, Engilbert Ingvarsson og Haukur Harðarson og syngja bæði ein- og tvísöng.
Á dagskrá er fjölbreytt tónlist, allt frá angurværum ástarljóðum til kraftmikilla karlmennskusöngva.
Vinsamlegast athugið að það eru ónúmeruð sæti á tónleikunum.
