
Söngvararnir Friðrik Ómar og Jógvan Hansen eru á ferð um landið og halda tónleika í Hömrum, Hofi fimmtudagskvöldið 23.
júní kl. 20:00.
Efnisskrá þeirra félaga er lög af plötunni Vinalög sem inniheldur íslensk og færeysk dægurlög en plata þeirra varð mest
selda platan á Íslandi árið 2009.
Alls halda þeir 24 tónleika á Íslandi í sumar en þetta verða áttundu tónleikar þeirra í ferðinni.
