Miðasalan hafin á Alvöru menn
Lesa meira




Föstudaginn 17. febrúar kl.20:00 verða tónleikar til minningar um Bergþóru Árnadóttur í Hömrum. Nú fást miðar á tónleikana á sérstöku jólatilboði sem gildir til 20.desember.
Lesa meira

Tónlistarskólinn á Akureyri býður upp á kynningu á Vetrarferð Schuberts í myndum, tali og tónum í Hömrum Hofi, þriðjudaginn 29. nóvember kl. 17-19.
Ljósin verða tendruð á jólatrénu á Ráðhústorgi næstkomandi laugardag, 26. nóvember. Dagskráin hefst klukkan 14:50
og stendur til að verða 16. En að dagskrá lokinni spilar Stórsveit Tónlistarskólans fjölbreytt jólalög í Hofi.


Menningarhúsið Hof í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands efndi til konukvölds í Hofi síðastliðið miðvikudagskvöld. Konur á öllum aldri komu saman og áttu saman skemmtilega kvöldstund og styrktu um leið átak Krabbameinsfélagsins, Bleiku slaufuna.
Lesa meira
Hljómsveitin Árstíðir fagnar útgáfu annarrar hljóðversplötu sinnar Svefns og vöku skil með tónleikum í Hofi, 11. nóvember kl. 21.

Kór Fjarðabyggðar ásamt þeim Óskari Péturssyni tenór og Daníel Þorsteinssyni píanóleikara flytja íslensk
ættjarðarlög á tónleikum í Hofi, 1. desember kl. 20:30.



Bíó Paradís í samstarfi við KvikYndi (Kvikmyndaklúbb Akureyrar) sýna sígildar kvikmyndir á breiðtjaldi í bestu
mögulegu hljómgæðum og færa þannig andrúmsloft kvikmyndanna í Hof.

Menningarhúsið Hof í samstafi við Krabbameinsfélag Íslands býður til konukvölds í Hofi miðvikudaginn 26. október kl.
19.30-21.30.



Uppselt er á tónleika Skálmaldar í Hofi 24. september kl. 20. Bætt hefur verið við aukatónleikum kl. 23 og er miðasala hafin. Tryggið ykkur miða í tíma, miðaverð aðeins 2.500 kr!
Lesa meira
Páll Óskar Hjálmtýsson syngur sín þekktustu lög af ferlinum við undirleik Jóns Ólafssonar og Róberts
Þórhallsonar í Hofi fimmtudaginn 6. október næstkomandi.

Gleðileikurinn Húsmóðirin eftir Vesturport sló heldur betur í gegn í Hofi um helgina. Uppselt var á báðar sýningar helgarinnar og hefur því verið bætt við aukasýningu laugardagskvöldið 10. september kl. 19 og 22.
Lesa meiraSöngfuglar er notalegt ferðalag aftur til fortíðar með sögum, söng og kaffitári með súkkulaði.
Miðasala á afmælistónleika Friðriks Ómars 1.október hófst klukkan tíu í morgun og á tíu mínútum seldist upp á tónleikana. Bætt hefur verið við aukatónleikum klukkan 17.
Lesa meira


Hymnodia flytur barokkóperuna Dido og Aeneas eftir Purcell ásamt hljómsveit.




Tónleikar Karlakórsins Hreims í Hofi laugardaginn 12. nóvember kl. 15. Meginþemað er rússnesk karlakóratónlist.



Tónleikar til heiðurs Ingimari Eydal sem hefði orðið 75 ára í október á þessu ári.





Notaleg kvöldstund í skammdeginu. Kammertónleikar í Hömrum 15. nóvember kl. 20 þar sem hljóðfæraleikararnir Dagbjört
Ingólfsdóttur (fagott), Gillian Haworth (óbó) og Páll Barna Szabó (píanó) koma fram.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands býður til sannkallaðrar veislu sem einkennist af jólagleði, birtu og yl.


Maxímús Músíkús veitir ungum sem öldnum innsýn í töfraheim tónanna 2. október kl. 14 í Hamraborg, Hofi.


Í sögunni um Baldur rekur hljómsveitin Skálmöld sögu víkings, allt frá því áður en hann missir allt sitt í árás, fjölskyldu, bú og land, til dauða og reyndar enn lengra. Skálmöld í Hofi laugardagskvöldið 24. september kl. 20 (uppselt) & 23.

Landskeppni við Færeyinga í skák fer fram nú um helgina og verður teflt á Húsavík og Akureyri.
Lesa meiraMenningarhúsið Hof þakkar öllum þeim gestum sem komu í skoðunarferðir um Hof um verslunarmannahelgina kærlega fyrir komuna.

Innrásarvíkingarnir eru nýjasti uppistandshópurinn á Íslandi sem ætla að koma fram í Hofi fimmtudagskvöldið, 25. ágúst kl. 20.
Alla laugardaga í sumar til og með 13. ágúst verður boðið uppá lifandi tónlist á
veitingastaðnum 1862 Nordic Bistro í Hofi.
Vel á annaðhundruð þúsund gesta heimsóttu Hof í vetur til að sækja einhvern þeirra fjölmörgu viðburða sem þar hafa farið fram. Á dagskránni hafa verið tónleikar, leikrit, myndlistasýningar, ráðstefnur, fundir, málþing, fjölskyldumorgnar og margt margt fleira.
Lesa meiraNú fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða á söngleikinn Hárið sem frumsýndur var í Hofi í apríl síðastliðnum.
Lesa meiraTvær sýningaopnanir verða í Hofi sunnudaginn 29. maí kl. 14.
Lesa meiraÚtskriftarnemar frá fagurlistadeild Myndlistarskólans á Akureyri sýna lokaverkefni sín í listljósmyndun í Hofi 14.-24. maí.
Lesa meiraSérstöku forsölutilboði á samstarfstónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Tónlistarskólans á Akureyri sem verða í Hofi laugardaginn 14. maí kl. 16:00 og Langholtskirkju í Reykjavík sunnudaginn 15. maí kl. 18:00 lýkur á morgun, 12. maí. Miðaverð í forsölu er 2.000 kr. en eftir það er miðaverðið 2.500 kr.
Lesa meiraMiðasala var að hefjast á útgáfutónleika Bubba og Sólskugganna verða útgáfutónleikar í Hofi fimmtudagskvöldið, 16. júní kl. 20:30.
Lesa meiraMiðasala var að hefjast á tvenna tenóratónleika í Hofi sem verða síðustu helgina í maí.
Lesa meiraStéttarfélögin á Akureyri bjóða til hátíðardagskrár í Hofi sunnudaginn 1. maí nk. að lokinni kröfugöngu.
Lesa meiraÍ tilefni Alþjóðlega dansdagsins 29. apríl verður í fyrsta skiptið haldið upp á daginn á Akureyri.
Lesa meiraÁ morgun, miðvikudagskvöldið 27. apríl kl. 20 er síðasta sýning á söngleiknum Hárinu í bili vegna anna og Eurovision þátttöku Matthíasar Matthíassonar, eins af forsprökkum sýningarinnar.
Lesa meiraMikið verður um að vera í Hofi yfir páskahátíðina, þar sem gestir á öllum aldri ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Lesa meiraSinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Hofi fimmtudaginn 21. apríl (skírdag) kl. 16:00. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir rússnesk tónskáld: Myndir á sýningu eftir Modest Moussorgsky, Festival overture eftir Dmitri Shostakovich og eftir Pjotr Tchaikovsky verða flutt verkin Capriccio italian og 1812 forleikurinn. Til liðs við SN á þessum tónleikum koma félagar úr Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem segja má að sé nokkurs konar unglingalandslið okkar í hljómsveitarleik. Stjórnandi á tónleikunum er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Lesa meiraVegna gríðarlegrar eftirspurnar hefur verið ákveðið að bæta við sætum á sýningum Hársins í Hofi, sem verður frumsýnd nk. föstudagskvöld.
Lesa meiraMeðlimir Caput hópsins þeir Guðni Franzson klarinettuleikari, Sigurður Halldórsson sellóleikari og Daníel Þorsteinsson píanóleikari flytja tónlist sem tengist Íslandi og Skotlandi á tónleikum í Hömrum minni sal Hofs fimmtudagskvöldið 14. apríl kl. 20.
Miðasala hafin.
Löng biðröð var við miðasölu Hofs þegar opnað var í dag kl. 13 en þá var miðum á úrslitaþátt Útsvars dreift til gesta. Miðarnir kláruðust á þremur mínútum og þurftu margir frá að hverfa.
Lesa meiraLið Akureyrar og Norðurþings etja kappi í útslitaviðureign Útsvarsins nk. föstudagskvöld í beinni útsendingu frá Hofi.
Til að tryggja sér sæti í salnum þarf að nálgast miða á fimmtudag kl. 13 í miðasölu Hofs eða í Norðurþings stjórnsýsluhúsinu á Húsavík. Við bendum á að takmarkað magn af miðum er í boði. Hver einstaklingur getur nálgast fjóra miða og börn þurfa að vera í fylgd með fullorðnum. Salurinn opnar kl. 19:30 og útsendingin hefst kl. 20:10.
Lesa meiraÍslenski dansflokkurinn verður með Fjölskyldusýningu í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri 2. apríl næstkomandi, miðaverð er 3.700 kr, en það verður frítt inn fyrir börn yngri en 12 ára og 13-16 ára fá miðann á hálfvirði. Jafnframt mun dansflokkurinn bjóða upp á frítt dansnámskeið fyrir ungt fólk á Akureyri og nágrenni föstudaginn 1. apríl.
Lesa meiraForsalan á söngleikinn Hárið er hafin. Sérstakt forsöluverð verður fram að frumsýningu 15. apríl nk. Miðaverð er 2.950 kr. Eftir það er miðaverð 3.950 kr. Forsölutilboðið er einungis bókanlegt á vefnum. Vinsamlegast athugið að afslátturinn birtist í þriðja skrefi í kaupaferlinu.
Lesa meiraÁgúst Ólafsson og Gerrit Schuil hlutu í vikunni Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarflytjendur ársins fyrir flutning sinn á ljóðaflokkum Schuberts, en þeir fluttu alla þrjá ljóðaflokka Schuberts, Malarastúlkunafögru, Vetrarferðina og Svanasöng, með viku millibili á Listahátíð 2010.
Lesa meiraMikil eftirvænting er í loftinu í Hofi fyrir fyrsta öskudeginum sem við höldum hátíðlegan í húsinu á morgun 9. mars. Við bjóðum krakka í öskudagsbúningum velkomna í húsið á milli kl. 8-12. Allir sem taka lagið fyrir okkur verða leystir út með sælgæti. Gleðin fer fram í Hömrum, minni sal Hofs og verða fulltrúar allra sem eru með starfsemi í húsinu á svæðinu.
Leikhópurinn Silfurtunglið vinnur nú að uppsetningu á söngleiknum Hárinu sem verður frumsýnt í Hofi 15. apríl næstkomandi. Söngleikurinn er eftir þá James Rado og Gerome Ragni en tónlistin er eftir Galt MacDermot. Jón Gunnar Þórðarson leikstýrir Hárinu.
Lesa meiraÞétt viðburðadagskrá verður í Hofi í mars. Föstudagskvöldið, 4. mars verður allra síðasta sýning Leikfélags Akureyrar á söngleiknum Rocky horror. Sýningin hefur slegið öll aðsóknarmet LA en frá því að sýningin var frumsýnd í september sl. hafa um 15.000 gestir séð sýninguna.
Lesa meiraSíðasta sýning Rocky Horror er föstudaginn 4. mars klukkan 20. Um 15.000 gestir hafa séð sýninguna nú þegar og gerir það sýninguna aðsóknarmestu sýningu Leikfélags Akureyrar frá upphafi.
Lesa meiraTónleikar SN, Klassík í Hofi sem þurfti að fresta í febrúarmánuði verða þriðjudaginn 22. mars 20:00. Tónleikarnir verða í Hömrum þar sem fram koma tveir kammerhópar skipaðir hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Annars vegar er það málmblásarakvintett og hinsvegar flauta og strengjatríó.
Lesa meiraÍ tilefni af degi tónlistarskólanna verður Tónlistarskólinn á Akureyri með opið hús í Hofi laugardaginn 26. febrúar. Boðið verður upp á brot af því besta sem á sér stað innan veggja skólans og er markmiðið að aðstandendur, nemendur, kennarar og allir þeir sem hafa áhuga á starfinu geti átt ánægjulega stund saman, sér að kostnaðarlausu.
Lesa meiraHluti af sýningunni Is(not) sem nú er sýnd í Hofi hlaut á mánudag önnur verðlaun fyrir myndröð ársins í „portrait series“ í hinni virtu ljósmyndasamkeppni Picture of the Year International.
Lesa meiraÍ kvöld verða tónleikar í Hömrum minni sals Hofs sem bera heitið Djúpilækur og Fagriskógur. Flytjendur eru Hulda Björk Garðarsdóttir sópran og Daníel Þorsteinsson píanóleikari. Á efnisskránni eru lög við ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk og Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Lesa meiraLjósmyndasýningin IS (not) verður opnuð í Hofi kl. 16 í dag. Sýningin er afrakstur samstarfs- verkefnis 5 pólskra ljósmyndara og 5
íslenskra rithöfunda sem var unnið á Íslandi. Aðstandendur sýningarinnar verða á staðnum í dag og kynna verkefnið.
Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.
Éljagangur, árviss vetrar- og útivistarhátíð, á Akureyri verður haldin með pompi og prakt 10.-13. febrúar næstkomandi.
Lesa meiraFjölskyldu- morgunn verður í Hofi sunnudaginn 6. febrúar nk. milli kl. 11 og 13. Börnum sem heimsækja Hof verður boðið í ævintýraferðir í litlum hópum um húsið, þar sem eitt og annað kemur á óvart!
Lesa meiraHvetjum alla til þess að koma við í Hofi næstkomandi sunnudag og taka virkan þátt í glænýjum og spennandi útvarpsþætti! Gestir út um allt er nýr skemmtiþáttur sem hefur göngu sína á Rás 2 og verður sendur út í beinni útsendingu af stóra sviðinu. Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson taka á móti gestum ásamt dúettnum Hannesi og Helga og hljómsveit Hjörleifs Jónssonar en hana skipa Hjörleifur Örn Jónsson, Daníel Bjarnason, Matti Saarinen og Eiríkur Bóasson.
Lesa meiraLaugardaginn 5.mars mun söngkonan Guðrún Gunnarsdóttir halda tónleika í Hofi, Akureyri til heiðurs Elly Vilhjálms, en í desember síðastliðnum hefði Elly orðið 75 ára.
Lesa meiraNóg verður um að vera þessa vikuna í Hofi, leikhópurinn Opið út er kominn í hús og er nú að undirbúa skólasýningar á Bláa gullinu dagana 25.-28. janúar. Það verður aðeins ein sýning í almennri sölu miðvikudaginn 26. janúar kl. 17.00 sem höfðar til allra á aldrinum 6-99 ára. Aðstandendur sýningarinnar hafa ákveðið að bjóða 2 fyrir 1 af miðaverði. Athugið að einungis er hægt að bóka tilboðið í miðasölu Hofs í s. 450 1000, miðasalan er opin virka daga 13-19.
Lesa meiraNorðurorka, Rarik, Menningarhúsið Hof, Borgarleikhúsið, Leikfélag Akureyrar, Flugfélag Íslands og KEA hafa tekið höndum saman ásamt leikhópnum Opið út og boðið öllum 4. og 5. bekkingum á Akureyri og nágrenni að koma á trúðasýninguna Bláa gullið.
Lesa meiraStórskemmtilegt trúðanámskeið verður fyrir áhugaleikara á aldrinum 18 til 99 ára í Hofi í lok janúar. Námskeiðið er haldið í tengslum við sýningar á barna– og fjölskyldusýningunni Bláa gullinu en það er Sólveig Guðmundsdóttir leikkona sem heldur utan um námskeiðið.
Lesa meiraMarkaðsstofa ferðamála á Norðurlandi hvetur alla þá aðila sem hagsmuni hafa af flugi milli Norðurlands og Evrópu að mæta til fundar í Hofi fimmtudagskvöldið 13. janúar kl. 20.
Fyrsti viðburður ársins í Hofi eru tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sunnudaginn 9. janúar nk. Slagverk og strengir er yfirskrift tónleikanna og verður þar Hjörleifur Örn Jónsson einleikari á marimbu.
Lesa meiraLaugardaginn 29. janúar kl. 15 mætir Diskóeyjan að nýju í Hof. Þetta er stórskemmtileg fjölskylduskemmtun þar sem einvala lið tónlistarmanna og sérlega glæsilegir búningar gleðja bæði unga sem aldna.
Lesa meiraVerkmenntaskólinn á Akureyri stóð fyrir fyrstu útskriftar- athöfninni í Hofi laugardaginn 18. desember 2010. Það voru 89 nemendur sem
útskrifuðust af hinum ýmsu brautum.
Góð stemning var á jólafjölskyldumorgni hér í Hofi síðastliðinn sunnudag sem haldinn var í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri.
Lesa meiraMetaðsókn var á hinn víðfræga söngleik Rocky Horror hjá Leikfélagi Akureyrar nú í haust. Um 12 þúsund gestir sóttu sýninguna á tveimur mánuðum en sýningar fóru fram í Menningarhúsinu Hofi.
Lesa meiraHljómsveitin Baggalútur hélt tvenna afar vel heppnaða jólatónleika í Hofi síðastliðna helgi. Þetta er í fyrsta skipti sem þeir standa fyrir jólatónleikum á Akureyri og vonandi ekki það síðasta.
Lesa meiraÁ liðnu vori var Íslandsklukkan sviðsett í Þjóðleikhúsinu í fjórða sinn og nú í leikgerð og leikstjórn Benedikts Erlingssonar, en tilefnið var að þessu sinni 60 ára starfsafmæli leikhússins.
Lesa meiraÞað hafa verið góðar viðtökur við leikferð Þjóðleikhússins norður yfir heiðar með Íslandsklukkuna en uppselt er á fyrstu tvær sýningarnar í Hofi um næstu helgi 19.-21. nóvember. Alls verða þrjár sýningar; kvöldsýningar á föstudegi og laugardegi en á sunnudeginum er sýning kl. 14.
Lesa meiraTrefillinn sem lagður var milli bæjarkjarna Ólafsfjarðar og Siglufjarðar við vígslu Héðinsfjarðarganga verður til sýnis 15. - 19. nóvember í Hofi. Hér gefst fólki tækifæri til að sjá trefillinn í einu lagi í allri sinni dýrð. Trefillinn er afrakstur athafnasemi Fríðu Bjarkar Gylfadóttur og rúmlega 1.400 prjónara.
Lesa meiraMiðsala var að hefjast á tónleika Ellenar Kristjánsdóttur fimmtudagskvöldið 25. nóvember kl. 20.
Hún ætlar að flytja nýtt efni í bland við eldri perlur með nýrri hljómsveit sinni í Hömrum, minni sal Hofs.
Lesa meiraMikil ásókn er í miða á tónleika Frostrósa um allt land og á Akureyri seldist upp á ferna tónleika fyrir hádegi á fyrsta miðasöludegi. Tvennum aukatónleikum var bætt við og verða þeir laugardaginn 18. desember kl. 20.00 og kl. 23.00. Tónleikarnir á Akureyri eru nú alls orðnir sex talsins, en fleiri geta þeir alls ekki orðið. Það stefnir í algera metsölu á Frostrósir í ár, alls hafa selst ríflega 20 þúsund miðar. Í níu ára sögu Frostrósa hefur miðasala aldrei farið eins vel af stað en tónleikarnir hafi verið þeir vinsælustu á Íslandi síðastliðin ár.
Lesa meiraStjórnlaganefnd og Eyþing – samtök sveitarfélaga á Eyjafirði og Þingeyjarsýslum halda borgarafund um endurskoðun stjórnarskrárinnar í Menningarhúsinu Hofi miðvikudaginn 20. október frá 20:00 – 22:00.
Lesa meiraUnnendur ljóðasöngva eiga heldur betur von á góðu í Hofi næstkomandi fimmtudagskvöld, 14. október. Þá fer nefnilega fram þar dagskrá með ljóðasöngvum Jóns Hlöðvers Áskelssonar tónskálds í flutningi Margrétar Bóasdóttur sóprans og Daníels Þorsteinssonar píanóleikara.
Lesa meiraSala á tónleikana Í minningu Vilhjálms Vilhjálmssonar hefur farið fram úr björtustu vonum.
Lesa meiraMiðvikudaginn 8. september býður Nýsköpunarmiðstöð Íslands á opið námskeið um viðhald og verðmæti fasteigna frá kl. 14:00-18:00.
Lesa meiraFjölbreytt dagskrá verður í tilefni opnunar Menningarhússins Hofs og Akureyrarvöku 27.-29. ágúst. Fjöldi listamanna leggur sitt af mörkum til þess að gera opnunardagskrána sem áhugaverðasta og ljóst er að allir munu finna eitthvað við sitt hæfi.
Lesa meiraMikil tímamót urðu í dag í Menningarhúsinu Hofi þegar tveir konsertflyglar voru fluttir í hús. Flyglarnir eru af tveimur tegundum, Steinway flygill annars vegar og hins vegar Bösendorfer flygill.
Lesa meiraMenningarhúsið Hof verður vígt þann 28. ágúst næstkomandi en um miðjan mánuð verður dagskrá fyrsta starfsárs
formlega kynnt. Starfsemin í húsinu verður fjölbreytt en á jarðhæð hússins verður meðal annars veitingastaðurinn 1862,
Upplýsingamiðstöð ferðamála og miðasala hússins.
Húsgögnin í Hofi eru hönnuð og framleidd hér á landi. Sætin í aðalsalnum eru frá hönnunarhúsinu Prologus en það er fyrirtækið Syrusson sem sá um hönnun á öðrum rýmum hússins.
Lesa meiraHof verður vettvangur fjölbreyttra menningar-viðburða á Akureyri auk þess sem fyrirmyndar ráðstefnu- og fundaaðstaða verður í húsinu. Opnunarhátíðin fer fram á Akureyrarvöku 27.- 29. ágúst næstkomandi.
Lesa meiraMenningarhúsið Hof auglýsti í apríl eftir fólki í fjögur störf í Menningarhúsinu. Um er að ræða stöðu umsjónarmans fasteignar, tæknistjóra, markaðsfulltrúa og starf í móttöku og miðasölu. Alls bárust 150 umsóknir um störfin og hefur stjórn Menningarfélagsins unnið úr umsóknum á síðustu dögum.
Lesa meiraBygginarnefnd Menningarhússins Hofs ákvað á hundraðasta fundi nefndarinnar nýverið að samþykkja tillögu nafnanefndar varðandi nafngiftir á sali og önnur rými í Menningarhúsinu Hofi.
Lesa meiraUm þessar mundir vinna allt að 50 starfsmenn að því að ljúka framkvæmdum í Menningarhúsinu Hofi en húsið verður opnað í lok ágúst næst komandi. Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki í júní og að sumarið verði notað í lokafrágang og prufukeyrslur.
Ljóst er að dagskráin fyrsta árið verður þétt og afar fjölbreyttir viðburðir verða á dagskrá þetta fyrsta rekstrarár. Þar er bæði um að ræða ráðstefnur og fundi en einnig stóra viðburði á sviði leiklistar, tónlistar og annarra sviðslistagreina.
Lesa meira
Starfsmenn Menningarhússins Hofs hafa nú sett sig í samband við kóra sem eru starfandi á svæði Eyþings og boðið þeim þátttöku í kóramóti í húsinu sem halda á laugardaginn 23 oktober 2010.
Lesa meira