
Schubert samdi Vetrarferðina árið 1827, ári fyrir andlát sitt. Hún er eitt áhrifamesta verk söngbókmenntanna.
Kristinn og Víkingur hafa hvor um sig vakið athygli fyrir glæsilegan tónlistarflutning. Þeir fluttu Vetrarferðina í Eldborgarsal Hörpu í júní síðastliðnum við húsfylli og hlutu einróma lof gagnrýnenda og hrifingu tónleikagesta.
