Menningarhúsið Hof

Verði þér að góðu Verði þér að góðu er ný kraftmikil sýning frá leikhópnum Ég og vinir mínir sem sló rækilega í gegn með fyrsta verki sínu Húmanímal. Í

Verði þér að góðu

Verði þér að góðu er ný kraftmikil sýning frá leikhópnum Ég og vinir mínir sem sló rækilega í gegn með fyrsta verki sínu Húmanímal. Í Verði þér að góðu er á sprenghlægilegan hátt fjallað um manninn sem félagsveru.

Okkur er boðið til samkvæmis þar sem félagsveran er krufin; við fylgjumst með því hvernig hún kemur fyrir og hvernig hún afhjúpar sig þegar hún er viðkæm, einmana og hungruð. Félagsveran bregður á leik, dansar, hreykir sér og þráir gefandi samskipti.

Ég og vinir mínir slá upp veislu í Hofi og afhjúpa sig og væntingar sínar í sýningu sem berst við að koma vel fyrir. Komdu í partý: VERÐI ÞÉR AÐ GÓÐU.

Verði þér að góðu var tilnefnd til þriggja Grímuverðlauna og var boðið til sýninga á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Lókal sem fer fram í Reykjavík í byrjun september.

Myndband úr sýningunni




moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf