Menningarhúsið Hof

Vel heppnaðir tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands Það voru ánægðir áheyrendur sem gengu út frá Hofi sunnudaginn 12. febrúar  að loknum

Vel heppnaðir tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands

Það voru ánægðir áheyrendur sem gengu út frá Hofi sunnudaginn 12. febrúar  að loknum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Efnisskráin var fjölbreytt en þar bar einna hæst frumflutningur á nýju í íslensku tónverki eftir Jón Ásgeirsson þar sem einn af fremstu píanóleikurum okkar Íslendinga, Peter Máté, steig á stokk.

Jón hefur lengi fylgst með ferli Peters og samdi verkið sérstaklega fyrir hann. Á efnisskránni var einnig ein vinsælasta og þekktasta sinfónía Beethovens, Sinfónía nr. 7 og Fingalshellir eftir Mendelssohn. 

Jón Ásgeirsson tónskáld sótti tónleikana og mætti þangað ásamt  fjölskyldu sinni. "Það var mikil upplifun að heyra Peter Maté og Guðmund Óla hljómsveitarstjóra ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flytja verkið í Hofi, þessu glæsilega húsi, þetta var frammistaða sem allir geta verið stoltir af."




moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf