
Nóg verður um að vera þessa vikuna í Hofi, leikhópurinn Opið út er kominn í hús og er nú að undirbúa skólasýningar á Bláa gullinu dagana 25.-28. janúar. Það verður aðeins ein sýning í almennri sölu miðvikudaginn 26. janúar kl. 17.00 sem höfðar til allra á aldrinum 6-99 ára. Aðstandendur sýningarinnar hafa ákveðið að bjóða 2 fyrir 1 af miðaverði. Athugið að einungis er hægt að bóka tilboðið í miðasölu Hofs í s. 450 1000, miðasalan er opin virka daga 13-19.
