
Trefillinn sem lagður var milli bæjarkjarna Ólafsfjarðar og Siglufjarðar við vígslu Héðinsfjarðarganga verður til sýnis 15. - 19. nóvember. Hér gefst fólki tækifæri til að sjá trefillinn í einu lagi í allri sinni dýrð.
Trefillinn er afrakstur athafnasemi Fríðu Bjarkar Gylfadóttur og rúmlega 1.400 prjónara.
Í Fjallabyggð og víðar um allt land og eitthvað erlendis, kepptist fólk við að prjóna. Karlar, konur og börn, innfæddir, aðfluttir og fráfluttir, eldri borgarar og unglingar tóku upp prjónana og lögðu sitt af mörkum við framleiðslu trefilsins.
Trefillinn endaði í 11,5 kílómetrum og verður í fyrsta skipti til sýnis innanhúss í Hofi í tilefni alþjóðlegrar athafnaviku.
Aðgangur ókeypis.
Í vikunni verður
boðið upp á fjölda viðburða alls staðar í heiminum sem eru hugsaðir til þess að kynna fólki leiðir til að nýta
hæfileika sína til nýsköpunar, athafnasemi og frumkvöðlahugsunar. Sjá nánar á http://www.athafnavika.is/.
Sýningunni lýkur kl. 14 föstudaginn 19. nóvember.
