
Páll Óskar Hjálmtýsson syngur sín þekktustu lög af ferlinum við undirleik Jóns Ólafssonar og Róberts
Þórhallsonar í Hofi fimmtudaginn 6. október næstkomandi.
Ekki nóg með það heldur rekur Jón úr honum garnirnar um lífið, tilveruna, textana og allt hitt sem okkur langar að vita um þennan vinsælasta skemmtikraft landsins. Hér er um að ræða spjalltónleika úr röðinni AF FINGRUM FRAM sem byggja á samnefndum sjónvarpsþáttum Jóns Ólafssonar og hafa verið á dagskrá Salarins í Kópavogi s.l. þrjá vetur.
Spjalltónleikarnir eru nú orðnir á þriðja tug og upplifunin er einstök í návígi við listamennina. Forsala aðgöngumiða er hafin í Hofi og hér.
