Menningarhúsið Hof

Tónleikar í Hömrum í kvöld Í kvöld verða tónleikar í Hömrum minni sals Hofs sem bera heitið Djúpilækur og Fagriskógur. Flytjendur eru Hulda

Tónleikar í Hömrum í kvöld

Í kvöld verða tónleikar í Hömrum minni sals Hofs sem bera heitið Djúpilækur og Fagriskógur. Flytjendur eru Hulda Björk Garðarsdóttir sópran og Daníel Þorsteinsson píanóleikari. Á efnisskránni eru lög við ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk og Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.

Flytjendurnir hafa safnað saman lögum eftir ýmis tónskáld við ljóð norðlensku höfðingjanna Kristjáns og Davíðs.  Þau eiga það einnig sameiginlegt með ljóðskáldunum tveimur að Eyjafjörður er þeim einstaklega hugleikinn.  Daníel býr þar og starfar sem píanóleikari og kennari  til margra ára og Hulda er fædd á Akureyri og bjó í Eyjafirði til 25 ára aldurs.  

Miðaverð á tónleikana: 2.500 kr.
Námsmenn, ellilífeyrisþegar og öryrkjar: 1.000 kr.

Miðasala á www.menningarhus.is og einnig við innganginn.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf