
Vel á annaðhundruð þúsund gesta heimsóttu Hof í vetur til að sækja einhvern þeirra fjölmörgu viðburða sem voru á
boðstólnum.
Spennandi menningarvetur framundan
Næsta vetur verða fjölmargir spennandi viðburði á dagskrá í Hofi, tónleikar, leiksýningar, kvikmyndasýningar, myndlistarsýningar og margt fleira.
Nýjung í Hofi næsta vetur eru áskriftarkort Hofs þar sem gestir geta geta valið á milli þeirra fjölbreyttu viðburða sem verða á dagskrá. Þrjár tegundir áskriftarkorta verða til sölu í haust, Klassíska kortið, Brot af því besta og Dúndur. Á hverju korti verða þrír fastir viðburðir og einn valviðburður.
