Menningarhúsið Hof

Sýning í tilefni alþjóðlegrar athafnaviku Trefillinn sem lagður var milli bæjarkjarna Ólafsfjarðar og Siglufjarðar við vígslu Héðinsfjarðarganga verður

Sýning í tilefni alþjóðlegrar athafnaviku

Trefillinn sem lagður var milli bæjarkjarna Ólafsfjarðar og Siglufjarðar við vígslu Héðinsfjarðarganga verður til sýnis 15. - 19. nóvember í Hofi. Hér gefst fólki tækifæri til að sjá trefillinn í einu lagi í allri sinni dýrð. Trefillinn er afrakstur athafnasemi Fríðu Bjarkar Gylfadóttur og rúmlega 1.400 prjónara.

Í Fjallabyggð og víðar um allt land og eitthvað erlendis, kepptist fólk við að prjóna. Karlar, konur og börn, innfæddir, aðfluttir og fráfluttir, eldri borgarar og unglingar tóku upp prjónana og lögðu sitt af mörkum við framleiðslu trefilsins.

Trefillinn endaði í 11,5 kílómetrum og verður í fyrsta skipti til sýnis innanhúss í Hofi í tilefni alþjóðlegrar athafnaviku.

Allir eru velkomnir á sýninguna og er aðgangur ókeypis. Sýningin verður í Naustinu forsalnum fyrir framan Hamraborg, aðalsal hússins. Opnunartími sýningarinnar er kl. 8-19.

Í vikunni verður boðið upp á fjölda viðburða alls staðar í heiminum sem eru hugsaðir til þess að kynna fólki leiðir til að nýta hæfileika sína til nýsköpunar, athafnasemi og frumkvöðlahugsunar.

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Hofs er einn talsmanna Athafnavikunnar. Hlutverk talsmanna Alþjóðlegrar athafnaviku 2010 er að  minna á gildi athafnasemi fyrir samfélagið með umfjöllun og þátttöku í viðburðum. Þeir hafa ólíkan bakgrunn og vekja því athygli á ýmsum þáttum athafnasemi. Allir eiga þeir þó sameiginlegt að vera jákvæðar fyrirmyndir og trúa á mikilvægi nýsköpunar og athafnasemi fyrir íslenskt samfélag! Nánari upplýsingar á http://www.athafnvika.is/.

 




moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf