Menningarhúsið Hof

Syngi Guði sæta dýrð Miðvikudaginn 1. desember kl. 20:00 mun Marta Guðrún Halldórsdóttir syngja íslensk og þýsk jólalög í Hömrum, minni sal Hofs. Að auki

Syngi Guði sæta dýrð

Miðvikudaginn 1. desember kl. 20:00 mun Marta Guðrún Halldórsdóttir syngja íslensk og þýsk jólalög í Hömrum, minni sal Hofs. Að auki verður flutt jólakantata eftir Böddecker fyrir sópran og continuo og jólatónlist fyrir strengi.

Með Mörtu á tónleikunum verða Lára Sóley Jóhannsdóttir og Zsusanna Bitay, fiðluleikarar, Ásdís Arnardóttir, sellóleikari og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, orgelleikari.

Miðaverð er 1.500 kr.
Nemar, öryrkjar og eldri borgarar 1000 kr.
Ókeypis fyrir 12 ára og yngri

Athugið að ekki er hægt að bóka sérkjör eða afslætti á netinu.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf