Menningarhúsið Hof

Superclásico (Erkifjendur) Bíó Paradís í samstarfi við KvikYndi (Kvikmyndaklúbb  Akureyrar) sýna kvikmyndir á breiðtjaldi í bestu mögulegu hljómgæðum og

Superclásico (Erkifjendur)

Bíó Paradís í samstarfi við KvikYndi (Kvikmyndaklúbb  Akureyrar) sýna kvikmyndir á breiðtjaldi í bestu mögulegu hljómgæðum og færa þannig andrúmsloft kvikmyndanna í Hof.

Superclásico (2011)

Vínbúðareigandinn Christian er afar óhress með yfirvofandi brúðkaup fyrrverandi konu sinnar Önnu og hins heimsfræga og alræmda knattspyrnukappa Juan Diaz. Eftir að hafa fundið kjarkinn á botni eðalvínflösku ákveður Christian að halda til Argentínu, stöðva brúðkaupið og vinna Önnu sína aftur.

Þessi eldfjöruga rómantíska kómedía frá leikstjóra Flammen og Citronen sló rækilega í gegn í Danmörku fyrr á árinu og var nýlega valin framlag Danmerkur til Óskarsverðlaunanna.

TEGUND OG ÁR: Gamanmynd, 2011
LAND: Danmörk
LENGD: 99 mín.
LEIKSTJÓRI: Ole Christan Madsen
AÐALHLUTVERK: Anders W. Berthelsen, Paprika Steen, Jamie Morton, Sebastian Estevanez



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf