
Mikil eftirvænting er í loftinu í Hofi fyrir fyrsta öskudeginum sem við höldum hátíðlegan í húsinu á morgun 9. mars. Við bjóðum krakka í öskudagsbúningum velkomna í húsið á milli kl. 8-12. Allir sem taka lagið fyrir okkur verða leystir út með sælgæti. Gleðin fer fram í Hömrum, minni sal Hofs og verða fulltrúar allra sem eru með starfsemi í húsinu á svæðinu.
