Menningarhúsið Hof

Söngkeppni félagsmiðstöðva Söngkeppni félagsmiðstöðva á Akureyri fer fram í Hofi fimmtudaginn 15. desember kl. 19:00. Miðasala fer fram í

Söngkeppni félagsmiðstöðva

Söngkeppni félagsmiðstöðva á Akureyri fer fram í Hofi fimmtudaginn 15. desember kl. 19:00. Miðasala fer fram í öllum félagsmiðstöðvunum, en einnig verður hægt að kaupa miða í Hofi á fimmtudagskvöldið fyrir viðburðinn. Miðaverð er 1000 kr.

Alls hafa 13 upprennandi söngstjörnur skráð sig í keppnina frá félagsmiðstöðvunum fjórum hér á Akureyri. Þegar uppi er staðið verða valin fjögur atriði sem komast áfram í söngkeppni félagsmiðstöðva á Norðurlandi sem fram fer á Sauðárkróki í lok janúar.

Við hvetjum sem flesta til að mæta og sjá þessa upprennandi snillinga flytja sín atriði.


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf