Menningarhúsið Hof

Söngkeppni félagsmiðstöðva Akureyrar Stærsti viðburður félagsmiðstöðva á Akureyri á hverju ári er söngkeppnin og að þessu sinni verður hún í Hofi 9.

Söngkeppni félagsmiðstöðva Akureyrar

Stærsti viðburður félagsmiðstöðva á Akureyri á hverju ári er söngkeppnin og að þessu sinni verður hún í Hofi 9. desember kl. 19.

Þetta er  fyrsti hluti söngkeppni Samfés og fara 5 atriði áfram í næstu keppni sem haldin verður á Dalvík 28. janúar næstkomandi. Lokahluti söngkeppni Samfés fer svo fram í Laugardalshöll 5. mars 2011.

Allur ágóði af viðburðinum rennur til styrktar Mæðrastyrksnefndar og Fjölskylduhjálpar en unglingarnir völdu sjálfir þessi málefni. Hægt er að kaupa miða í öllum félagsmiðstöðvum Akureyrar, einnig er hægt að kaupa miða í Hofi eða á heimasíðu Hofs.

Miðaverð: 1.000 kr.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf