
Sunnudaginn 9. janúar í Hofi verða tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Hamraborg aðalsal Hofs.
Á efnisskrá tónleikanna er konsert fyrir marimbu og strengjasveit eftir Ney Rosauro, Holberg svíta eftir Edward Grieg og Kammersinfónía eftir Dmitri Shostakowich.
Einleikari á marimbu er Hjörleifur Örn Jónsson slagverksleikari og stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.
