
Í sögunni um Baldur rekur hljómsveitin Skálmöld sögu víkings, allt frá því áður en hann missir allt sitt í árás, fjölskyldu, bú og land, til dauða og reyndar enn lengra. Skálmöld í Hofi laugardagskvöldið 24. september kl. 20 (uppselt) & 23.
Plata þeirra, Baldur, sló óvænt í gegn á árinu og hyggst sveitin flytja allt verkið í heild sinni, frá fyrsta lagi til hins síðasta. Þar er rakin saga víkingsins Baldurs í kraftmiklu, melódísku þungarokki og metnaðarfullum textum sem hafa að geyma margar tilvísanir og minni í ætt við fornsögur og forna goðafræði. Tónleikarnir í Hofi verða þeir síðustu sem Skálmöld heldur á Íslandi áður en sveitin heldur í víking til tónleikahalds um gervalla Evrópu. Ekkert verður til sparað á tónleikunum, myndefni sem tengist verkinu verður varpað upp á tjald og sögumaður rekur söguna meðfram flutningi sveitarinnar.Um upphitun sér dúettinn Skeggöld en það er nýtt nafn yfir samstarf þeirra Steindórs Andersen og Hilmars Arnar Hilmarssonar. Þeir hafa lengi verið í fremstu röð Íslendinga þegar kemur að rímum og rímnakveðskap og eru óhræddir við að leika sér með formið.
Tónleikarnir verða sendir út í beinni útsendingu á Rás 2.
