Menningarhúsið Hof

Sinfóníuhljómsveit Íslands Sinfóníuhljómsveit Íslands kemur fram í fyrsta sinn í Hofi fimmtudagskvöldið 27. október kl. 19:30.

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóníuhljómsveit Íslands kemur fram í fyrsta sinn í Hofi fimmtudagskvöldið 27. október kl. 19:30.

Á efnisskránni eru tvö meistaraverk: glæsilegur klarínettukonsert Webers og kraftmikil sinfónía Beethovens.

Einar Jóhannesson hefur um árabil verið meðal fremstu tónlistarmanna landsins. Hann gegnir stöðu sólóklarínettuleikara við Sinfóníuhljómsveit Íslands, er stofnfélagi Blásarakvintetts Reykjavíkur og leikur með Kammersveit Reykjavíkur.

Daníel Bjarnason starfar jöfnum höndum sem hljómsveitarstjóri, tónskáld og útsetjari. Meðal hljómsveita sem hann hefur stjórnað eru London Sinfonietta, Sinfóníuhljómsveit Íslands og hljómsveit Íslensku óperunnar. Auk þess er hann hljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi kammersveitarinnar Ísafoldar.

Stjórnandi
Daníel Bjarnason

Einleikari
Einar Jóhannesson

Carl Maria von Weber:Klarínettukonsert nr. 2 í Es-dúr
Ludwig van Beethoven




moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf