Menningarhúsiğ Hof

Síðasti dagur á forsölutilboði á morgun 12. maí Sérstöku forsölutilboði á samstarfstónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Tónlistarskólans á

Síğasti dagur á forsölutilboği á morgun 12. maí

Sérstöku forsölutilboði á samstarfstónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Tónlistarskólans á Akureyri sem verða í  Hofi laugardaginn 14. maí kl. 16:00 og Langholtskirkju í Reykjavík sunnudaginn 15. maí kl. 18:00 lýkur á morgun, 12. maí. Miðaverð í forsölu er 2.000 kr. en eftir það er miðaverðið 2.500 kr.

Á þessum tónleikum koma til liðs við SN og TA hljómsveitir frá tveim tónlistarskólum í Danmörku, nánar tiltekið Hvidövre og Albertslund. Á efnisskránni verður Sinfónía nr. 2 eftir J. Brahms, Svíta fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Christian Sinding og Finlandia eftir Jean Sibelius.

Einleikari á fiðlu er norskur fiðluleikari Bård Monsen. Einnig mun Karlakór Akureyrar Geysir syngja með hljómsveitinni.

Stjórnandi á tónleikunum er Guðmundur Óli Gunnarsson.

Einnig er tilboð fyrir 16 ára og yngri 1.000 kr en það er einungis bókanlegt í miðasölu Hofs og við innganginn á tónleikunum í Langholtskirkju.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf