Menningarhúsið Hof

Samstarfstónleikar SN og TA í Langholtskirkju Samstarfstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Tónlistarskólans á Akureyri verða í 

Samstarfstónleikar SN og TA í Langholtskirkju

Samstarfstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Tónlistarskólans á Akureyri verða í  Hofi laugardaginn 14. maí kl. 16:00 og Langholtskirkju í Reykjavík sunnudaginn 15. maí kl. 18:00.

Á þessum tónleikum koma til liðs við SN og TA hljómsveitir frá tveim tónlistarskólum í Danmörku, nánar tiltekið Hvidövre og Albertslund. Á efnisskránni verður Sinfónía nr. 2 eftir J. Brahms, Svíta fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Christian Sinding og Finlandia eftir Jean Sibelius.

Einleikari á fiðlu er norskur fiðluleikari Bård Monsen. Einnig mun Karlakór Akureyrar Geysir syngja með hljómsveitinni.

Stjórnandi á tónleikunum er Guðmundur Óli Gunnarsson.

Sérstakt forsölutilboð til 12. maí nk. miðaverð 2.000 kr. Eftir það er miðaverðið 2.500 kr.

Miðaverð fyrir 16 ára og yngri 1.000 kr einungis bókanlegt í miðasölu Hofs og við innganginn á tónleikunum í Langholtskirkju.    



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf