Menningarhúsið Hof

Rocky Horror aftur á fjalirnar Metaðsókn var á hinn víðfræga söngleik Rocky Horror hjá Leikfélagi Akureyrar nú í haust. Um 12 þúsund gestir sóttu

Rocky Horror aftur á fjalirnar

Metaðsókn var á hinn víðfræga söngleik Rocky Horror hjá Leikfélagi Akureyrar nú í haust. Um 12 þúsund gestir sóttu sýninguna á tveimur mánuðum en sýningar fóru fram í Menningarhúsinu Hofi.

Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að sýna nokkrar aukasýningar á Rocky Horror, og verður fyrsta sýningin föstudaginn 11. febrúar kl. 20:00. Sýningafjöldi verður takmarkaður.

Fjöldi glæsilegra listamanna koma fram í sýningunni, sem er hin magnaðasta í alla staði. Má þar nefna Magnús Jónsson sem Frank N Furter, Andreu Gylfadóttur sem Columbiu, Bryndísi Ásmundsdóttur sem Magentu, Eyþór Inga Gunnlaugsson sem fer á kostum sem Riff Raff og Matta Matt (í Pöpunum og Dúndurfréttum) sem Eddie.

Lögin úr sýningunni hafa verið gefin út á geisladiski og fást í öllum helstu plötu-, bóka- og matvöruverslunum.

Hægt er að kaupa miða hér.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf