Menningarhúsið Hof

Póst Rokk og Ról Póst Rokk og Ról er tónleikaferð um Ísland með þremur undra hljómsveitum, Agent Fresco, Lockerbie og Of Monsters And Men. Tónleikar

Póst Rokk og Ról

Póst Rokk og Ról er tónleikaferð um Ísland með þremur undra hljómsveitum, Agent Fresco, Lockerbie og Of Monsters And Men. Tónleikar í Hofi fimmtudagskvöldið 21. júlí kl. 21.
Þessar hljómsveitir eru með þeim efnilegri á landinu um þessar mundir og eru þegar farnar að gefa sér gott orð á erlendri grundu.

Agent Fresco strákarnir koma funheitir af Evróputúr þar sem þeir spiluðu meðal annars á Hróarskeldu, þeir átti einnig eina af bestu plötum síðasta árs.

Lockerbie voru að gefa út sína fyrstu breiðskífu 7. júlí síðastliðinn og er hljómsveit vikunnar á Rás 2 sömu viku og Póst Rokk og Ról fer um landið, en hafa einnig verið hljómsveit vikunnar í Þýska Ríkisútvarpinu og voru nýlega að skrifa undir útgáfusamning í Japan.

Of Monsters And Men krakkarnir eru með skemmtilegri hljómsveitum landsins þessa dagana, lagið þeirra Little Talks hefur fengið yfir 120 þúsund spilanir á youtube og er eitt besta lag síðasta árs.

Ekki missa af þessum einstaka viðburði í Hofi fimmtudagskvöldið 21. júlí kl. 21.

Miðasala á tónleikana fer fram hér á vefnum og við innganginn.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf