Miðvikudaginn 27. október kl. 17:00 flytur Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ævintýrið um Pétur og úlfinn eftir Sergei Prokofieff í Hofi.
Verkið er sviðsett með leikbrúðum og sett upp í samstarfi við Brúðuheima í Borgarnesi og Leikfélag Akureyrar.
Leikbrúðustjórnandi er Bernd Ogrodnik, leikstjóri Jana María Guðmundsdóttir og sögumaður er Guðmundur Ólafsson.
Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.
