
Hvetjum alla til þess að koma við í Hofi næstkomandi sunnudag og taka virkan þátt í glænýjum og spennandi útvarpsþætti! Gestir út um allt er nýr skemmtiþáttur sem hefur göngu sína á Rás 2 og verður sendur út í beinni útsendingu af stóra sviðinu. Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson taka á móti gestum ásamt dúettnum Hannesi og Helga og hljómsveit Hjörleifs Jónssonar en hana skipa Hjörleifur Örn Jónsson, Daníel Bjarnason, Matti Saarinen og Eiríkur Bóasson.
Það verða frábærir listamenn sem koma í heimsókn í Gestum út um allt. Í fyrsta þættinum eru það stórstjörnurnar Sigríður Thorlacius, Sigurður Guðmundsson og Guðmundur Kristinn Jónsson eða Kiddi Hjálmur sem munu skemmta hlustendum með söng og óvæntum uppákomum.
Meðal dagskrárliða eru framhaldssagan Draumur Dalastúlkunnar, leikurinn Hvað kemur næst? þar sem gestir í sal fá að spreyta sig, leiknar auglýsingar, Húsráð Frú Blöndal og tónlist í öllum regnbogans litum Það verður sungið og trallað, leikið og spjallað.
Gestir út um allt, síðasta sunnudag í mánuði frá 13-15 í beinni útsendingu frá Hofi á Rás 2.
