Menningarhúsiđ Hof

Nýdönsk í nánd Hljómsveitin Nýdönsk fagnar nú 25 ára afmæli og sýnir á sér sparihliðina í sýningunni "Nýdönsk í nánd" sem hefur gengið fyrir fullu húsi í

Nýdönsk í nánd

Hljómsveitin Nýdönsk fagnar nú 25 ára afmæli og sýnir á sér sparihliðina í sýningunni "Nýdönsk í nánd" sem hefur gengið fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu og er nú væntanleg í Hof um páskana.

Hljómsveitarmeðlimir eru ekki einhamir og bregða sér í ólíklegustu hlutverk í sýningunni. Má þar nefna hreyfilistabræðurna Kaffa og Konna, Óla Idol, Rokk Harðarson, stærsta gítarleikara í heimi, Bingólf Bjarnar og sönghópinn Take That. Auk þessa bjóða þeir gestum sínum upp á alvöru tónleika þar sem Nýdanskir rifja upp eitt og annað ógleymanlegt frá farsælum ferli.

Í sveitinni eru góðir sagnamenn og nú lifna sögurnar við. Hér heyrir þú sögurnar á bak við lögin og textana, skandalana og stórsigrana.

Höfundar handrits, texta og tónlistar: Nýdönsk

Leikstjóri: Gunnar Helgason




moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf