Menningarhúsið Hof

Ný verslun Hrím hönnunarhúss Menningarhúsið Hof verður vígt þann 28. ágúst næstkomandi en um miðjan mánuð verður dagskrá fyrsta starfsárs formlega kynnt.

Ný verslun Hrím hönnunarhúss

Hrafnhildur og Tinna eigendur Hríms
Hrafnhildur og Tinna eigendur Hríms

Menningarhúsið Hof verður vígt þann 28. ágúst næstkomandi en um miðjan mánuð verður dagskrá fyrsta starfsárs formlega kynnt. Starfsemin í húsinu verður fjölbreytt en á jarðhæð hússins verður meðal annars veitingastaðurinn 1862, Upplýsingamiðstöð ferðamála og miðasala hússins. 

Nú hefur einnig verið gengið frá samningum við Hrím hönnunarhús um rekstur verslunar á jarðhæð hússins.

Hrím Hönnunarhús var stofnað í apríl árið 2010 af arkitektunum Hrafnhildi A. Jónsdóttur og Tinnu Brá Baldvinsdóttur en þá opnuðu þær verslun í Kaupvangsstræti 10.

Vöruúrvalið í Hofi verður fjölbreytt og spennandi. Auk þess að bjóða upp á flotta hönnunarvöru verður lögð áhersla á falleg húsgögn, líflegan fatnað ásamt því að boðið verður uppá vandaða skartgripi og listvöru.

Hrafnhildur og Tinna hvetja alla skapandi hönnuði til að hafa samband og segja að það væri sérstaklega skemmtilegt að geta boðið upp á það besta í eyfirskri hönnun í nýja Menningarhúsinu okkar Hofi.

 



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf