
Tónleikar SN, Klassík í Hofi sem þurfti að fresta í febrúarmánuði verða þriðjudaginn 22. mars 20:00. Tónleikarnir verða í Hömrum þar sem fram koma tveir kammerhópar skipaðir hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Annars vegar er það málmblásarakvintett og hinsvegar flauta og strengjatríó.
Á efnisskránni verða verk eftir Árna Egilson, Samuel Scheidt, Victor Ewald og W.A. Mozart.
Hægt er að kaupa miða á tónleikana hér eða í miðasölu Hofs í s. 450-1000.
