Menningarhúsið Hof

Norðlensk tónlistarveisla Föstudagskvöldið 3. september kl. 20 koma fram norðlensk ættaðar hljómsveitir sem njóta, eiga eftir og hafa notið vinsælda um

Norðlensk tónlistarveisla

Föstudagskvöldið 3. september kl. 20 koma fram norðlensk ættaðar hljómsveitir sem njóta, eiga eftir og hafa notið vinsælda um allt land. Hljómsveitirnar eru  Hvanndalsbræður, Helgi og hljóðfæraleikararnir, Heflarnir sem er ný hljómsveit skipuð: Kristjáni Pétri Sigurðssyni söngvara, Arnari Tryggvasyni hljómborð, Rögnvaldi gáfaða bassa og Trausta Ingólfssyni trommur og Bara-flokkurinn sem kemur nú saman eftir 10 ára hlé. Þeim til aðstoðar eru Ásgeir Sæmundsson hljómborð, bakraddir og Björgvin Ploder slagverk, bakraddir. Bara-flokkurinn hefur ekki spilað í heimabænum í 25 ár.  Kynnir er Rögnvaldur Gáfaði.

Bara-flokkurinn var starfandi á árunum 1980- 1985 og naut gífulegrar vinsælda um allt land. Á þeim árum gaf hljómsveitin út þrjár hljómplötur, Bara-flokkurinn (1981), Lizt (1982) og Gas (1983) einnig Zahir (2000) Bara-flokkurinn var ein af hljómsveitunum sem kom fram í myndinni Rokk í Reykjavík.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf