Menningarhúsið Hof

Miðasala hafin á útgáfutónleika Sveins Dúu Sveinn Dúa Hjörleifsson efnir til útgáfutónleika í Hofi í tilefni úkomu fyrstu einsöngsplötu sinnar, Værð.

Miðasala hafin á útgáfutónleika Sveins Dúu

Sveinn Dúa Hjörleifsson efnir til útgáfutónleika í Hofi í tilefni úkomu fyrstu einsöngsplötu sinnar, Værð.

Tónleikarnir verða í Hofi sunnudagskvöldið 13. nóvember kl. 20.

Sveinn Dúa syngur þjóðþekkt lög úr bókinni „Íslenskt söngvasafn“ eða Fjárlögum, auk laga eftir Sigvalda Kaldalóns, Pál Ísólfsson og Björgvin Guðmundsson.

Lögin eru útsett af Hirti Ingva Jóhannssyni, sem einnig leikur á píanó.

Nánari upplýsingar í miðasölu Hofs og hér.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf