Menningarhúsið Hof

Miðasala að hefjast á grasrótartónleika Miðasala hefst í dag kl. 13 á grasrótartónleikar í Hofi laugardagskvöldið 25. febrúar kl. 21.

Miðasala að hefjast á grasrótartónleika

Miðasala hefst í dag kl. 13 á grasrótartónleikar í Hofi laugardagskvöldið 25. febrúar kl. 21.

Andstætt því sem margur heldur er gróska í grasrótarmenningu Akureyrar. Hér í bæ þrífast tónlistarmenn sem spila ekki með það fyrir augum að sigra heiminn, heldur þróa með sér sérkenni og frumleika á eigin hátt.

Hljómsveitirnar: Hindurvættir, Gruesome Glory, Buxnaskjónar og Völva  ætla að bjóða upp á ferskan tónflutning sem gæðir Hofi nýjum blæ.

Allt frá glaðværu pönki og krefjandi tæknilegu þungarokki yfir í hægari tóna með blúsáhrifum og tilraunablæ. Týndir bræður sem vinna að skapandi tónlistarstarfi og hafa sameiginlegt sjónarmið: Að brjóta upp þann hversdagslega ramma sem svo gjarnan áreitir hlustir okkar í daglegu afþreyingamynstri.

Miðaverð aðeins 1.000 kr.

Nánari upplýsingar í miðasölu Hofs og hér.




moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf