Menningarhúsið Hof

Miðar ruku út á þremur mínútum Löng biðröð var við miðasölu Hofs þegar opnað var í dag kl. 13 en þá var miðum á úrslitaþátt Útsvars dreift til gesta.

Miðar ruku út á þremur mínútum

Löng biðröð var við miðasölu Hofs þegar opnað var í dag kl. 13 en þá var miðum á úrslitaþátt Útsvars dreift til gesta. Miðarnir kláruðust á þremur mínútum og þurftu margir frá að hverfa.

Þeir sem ekki fengu miða eru þó hvattir til að mæta í Hof annað kvöld og taka þátt í stemningunni. Keppnin verður sýnd á risatjaldi í minni salnum Hömrum en útsendingin verður af stóra sviði Hamraborgar. Má búast við stórskemmtilegri stemningu í húsinu. Salurinn verður opnaður kl. 19.30 og útsendingin hefst kl. 20.10. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf