
Á sýningunni verða einnig flutt ýmis lög úr smiðju Kurt Weill, Leonard Bernstein, Andrew Lloyd Webber, Giuseppe Verdi og Francis Poulenc, svo dæmi séu nefnd. Leikstjóri sýningarinnar er Ágústa Skúladóttir og hönnuður ljósa var Páll Ragnarson. Einnig koma fram Antonía Hevesi píanóleikari og leikararnir Magnús Guðmundsson og Nicolaj Falck.
Þetta metnaðarfulla verk var fyrst fært upp í samstarfi við Íslensku óperuna haustið 2010. Nánari upplýsingar í miðasölu Hofs og Leikfélags Akureyrar.
