Menningarhúsið Hof

Lay Low útgáfutónleikar Lovísa Elísabet, eða Lay Low eins og hún er oft kölluð, var allt síðasta ár að vinna í sinni þriðju breiðskífu. 21. október

Lay Low útgáfutónleikar

Lovísa Elísabet, eða Lay Low eins og hún er oft kölluð, var allt síðasta ár að vinna í sinni þriðju breiðskífu. 21. október næstkomandi kl. 21. ætlar hún að kynna hana fyrir Norðlendingum og spila nýju lögin í bland við þau gömlu á tónleikum í Hofi.

Hljómsveitin sem hefur ferðast með henni á tónleikaferðum erlendis verður með í för.

Það má segja að Lay Low hafi farið um víðan völl hvað varðar tónlistarstefnur og má því búast við að þetta verði skemmtilega fjölbreytt kvöld. Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til þess að hlýða á Lay Low og hljómsveit hennar."



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf