Menningarhúsið Hof

Kvennakór Akureyrar - mæðrastyrkstónleikar Kvennakór Akureyrar heldur sína árlegu tónleika til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar í Hamraborg í Hofi

Kvennakór Akureyrar - mæðrastyrkstónleikar

Kvennakór Akureyrar heldur sína árlegu tónleika til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar í Hamraborg í Hofi fimmtudaginn 8. desember kl. 20.

Kórinn hefur undanfarin ár haldið tónleika á aðventunni þar sem allur ágóði rennur óskiptur til Mæðrastyrksnefndar. Allir sem fram koma á tónleikunum gefa vinnu sína.

Með kórnum á þessum tónleikum koma fram einsöngvararnir Guðrún Gunnarsdóttir og Ívar Helgason.

Hljómsveit skipa þeir Aladár Rácz á píanó, Pétur Ingólfsson á kontrabassa og Emil Þorri Emilsson á slagverk.

Stjórnandi kórsins er Daníel Þorsteinsson.

Frítt fyrir 14 ára og yngri.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf